Rauðvínssósa
2018-01-19- Máltíð: Íslenkst
- Réttur: Aðalréttur
- Hæfniskröfur: Einfalt
-
Add to favorites
- Undirbúningur : 5m
- Eldunartími : 20m
- Tilbúið eftir : 30m
Meðaleinkunn
(0 / 5)
0 gefið einkunn
Aðrar uppskriftir:
Innihald
- Nautasoð 750 ml
- Olía 2-3 msk
- Smjör 2 msk
- Shallot laukur (skorinn gróft) 1 stk
- Gulrætur (skornar gróft) 30 gr
- Sveppir 70 gr
- Hvítlauksgeiri (kraminn) 2 stk
- Balsamic edik (55 ml)
- Rauðvín 100 ml
- Smjör 2-3 msk
- Sítrónusafi (eftir smekk)
- Salt og sykur (eftir smekk)
Aðferð
Skref 1
Laukurinn, sveppir og gulrót er létt brúnað í potti í 6-7 min fyrst upp úr olíu svo er smjöri.
Skref 2
Balsamic ediki er hellt út í og soðið alveg niður í syróp.
Skref 3
Þá kemur rauðvínið sem er soðið niður um helming.
Skref 4
og svo loks nautasoðið.
Skref 5
Hvítlauksgeira og timjani er bætt út í og soðið niður um helming eða þar til kjarngott bragð er komið í sósuna.
Skref 6
Sigtað og smakkað til með salt, sykri og ögn af sítrónusafa.
Skref 7
Að lokum er sósan látiðn sjóða og kalt smjör hrært saman við til að þykkja hana.